Fréttir

YOKOHAMA á Íslandi

Dekkjahöllin getur nú státað sig af því að hafa fengið umboð á Íslandi fyrir japanska dekkjaframleiðandann YOKOHAMA. Í haust verður í boði glæsileg lína vetrardekkja fyrir fólksbíla, jepplinga og flestar gerðir jeppa.   Sjá nánar á http://www.yokohama.is/
Lesa meira

Marangoni dekk – Umhverfisvæn framleiðsla

Þessa dagana keppast hjólbarðaframleiðendur við að endurbæta framleiðslu sína og útrýma eiturefnum, þ.e. PAH olíu, úr framleiðslu sinni til að uppfylla nýlegar kröfur Evrópusambandsins.  
Lesa meira

HEILSÁRSDEKK Á BETRA VERÐI

Eigum á lager fjölmargar stærðir heilsársdekkja á frábæru verði. Sendið okkur fyrirspurn eða hringið í síma 581 3002 (RVK), 4712002 (EG) eða 4623002 (AK).
Lesa meira

Enn fleiri dekk á enn betra verði

Sumardekk - Verðsprengja. Höfum fengið í hús fleiri stærðir af góðum sumardekkjum á frábæru verði. Verðdæmi: 195/65R15 frá kr. 9.988,- stk/stgr 205/55R16 frá kr. 11.993,- stk/stgr 215/65R16 frá kr. 13.365,- stk/stgr 225/70R16 frá kr. 16.437,- stk/stgr 235/65R17 frá kr. 17.654,- stk/stgr 225/40R18 frá kr. 15.410,- stk/stgr Þetta er einungis brot af því best. Hafið samband við sölumann eða sendið verðfyrirspurn varðandi aðrar stærðir. 
Lesa meira

Dekk - Sumardekk - Dekk

Erum að fá í hús í dag Zeetex dekk á frábæru verði, ýmsar stærðir bæði fólksbíladekk og jeppadekk. Kynntu þér málið á þjónustustöðvum okkar (Reykjavík, s. 5813002 - Akureyri, s. 4623002 - Egilsstaðir, s. 4712002)
Lesa meira

Dekkjadagar FM957 og Dekkjahallarinnar

Viltu eiga möguleika á því að vinna ný sumardekk og 30.000 kr. bensínkort frá ÓB?
Lesa meira

Vinningshafar í öskudagsleiknum

Dómnefnd hefur lokið störfum um flottustu öskudagshópana.  Það er ekki einungis horft til búninga heldur einnig söngs.  Margir hafa greinilega æft sig vel fyrir öskudaginn.  Auk þess að hafa valið vinningshafa þá settum við upptökur frá nokkrum hópum inn á Youtube síðu Dekkjahallarinnar.  Því miður þá tókust ekki allar upptökur sem voru teknar þennan dag. Þeir hópar sem fá bíómiða í Borgarbíó og popp og kók eru:
Lesa meira

Öskudagsmyndir komnar inn

Það voru börn, löggur, skrímsli og aðrar kynjaverur sem heimsóttu Dekkjahöllina á öskudaginn.  Dekkjahöllin á Akureyri verðlaunar samkvæmt venju flottustu öskudagshópana.  Dómnefnd er að störfum og verða úrslit tilkynnt fljótlega.  Einnig munum við birta nokkur myndbönd. Hægt er að skoða myndir með að skoða myndasafn (Um okkur - myndasafn) eða smella hér.
Lesa meira

Dekkjahöllin er framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt Creditinfo

Creditinfo framkvæmdi nýlega greiningu á þeim rúmlega 32.000 íslensku fyrirtækjum, sem skráð eru í hlutafélagaskrá. Dekkjahöllin er í hópi 177 fyrirtækja sem náðu bestu einkunn í þessu styrk- og stöðugleikamati og er samkvæmt því í hópi sterkustu fyrirtækja landsins. Nánari upplýsingar um styrkleikamatið og lista framúrskarandi fyrirtækja er að finna á heimasíðu Creditinfo (hér).
Lesa meira

Heimsókn frá Krógabóli

Leikskólinn Krógaból kom í vettvangsheimsókn til okkar í Dekkjahöllinni á Akureyri í gær.  Þau fengu skoðunarferð um fyrirtækið og svo fengu þau að henda litlu dekki í stórt traktorsdekk.  Að lokum fengu þau svo smá næringu eftir leikinn.  Börnin voru einstaklega góð og stillt þótt að mikið væri að sjá.  Við þökkum börnum og kennurum Krógabóls kærlega fyrir heimsóknina.  Myndir er hægt að sjá í myndasafni
Lesa meira