Karfan er tóm.
Fréttir & tilkynningar
Marangoni dekk Umhverfisvæn framleiðsla
06.07.2011
Almennt
Þessa dagana keppast hjólbarðaframleiðendur við að endurbæta
framleiðslu sína og útrýma eiturefnum, þ.e. PAH olíu, úr framleiðslu sinni til að uppfylla nýlegar kröfur
Evrópusambandsins.
HEILSÁRSDEKK Á BETRA VERÐI
21.06.2011
Almennt
Eigum á lager fjölmargar stærðir heilsársdekkja á frábæru verði. Sendið okkur fyrirspurn eða hringið í síma 581 3002
(RVK), 4712002 (EG) eða 4623002 (AK).
Enn fleiri dekk á enn betra verði
18.05.2011
Almennt
Sumardekk - Verðsprengja.
Höfum fengið í hús fleiri stærðir af góðum sumardekkjum á frábæru verði.
Verðdæmi:
195/65R15 frá kr. 9.988,- stk/stgr
205/55R16 frá kr. 11.993,- stk/stgr
215/65R16 frá kr. 13.365,- stk/stgr
225/70R16 frá kr. 16.437,- stk/stgr
235/65R17 frá kr. 17.654,- stk/stgr
225/40R18 frá kr. 15.410,- stk/stgr
Þetta er einungis brot af því best. Hafið samband við sölumann eða sendið verðfyrirspurn varðandi aðrar stærðir.
Dekk - Sumardekk - Dekk
19.04.2011
Almennt
Erum að fá í hús í dag Zeetex dekk á frábæru verði, ýmsar stærðir bæði fólksbíladekk og
jeppadekk. Kynntu þér málið á þjónustustöðvum okkar (Reykjavík, s. 5813002 - Akureyri, s. 4623002 - Egilsstaðir, s. 4712002)
Dekkjadagar FM957 og Dekkjahallarinnar
14.04.2011
Almennt
Viltu eiga möguleika á því að vinna ný sumardekk og 30.000 kr. bensínkort frá
ÓB?
Vinningshafar í öskudagsleiknum
14.03.2011
Almennt
Dómnefnd hefur lokið störfum um flottustu öskudagshópana. Það er ekki einungis horft til búninga heldur einnig söngs. Margir hafa
greinilega æft sig vel fyrir öskudaginn. Auk þess að hafa valið vinningshafa þá settum við upptökur frá nokkrum hópum inn
á Youtube síðu Dekkjahallarinnar. Því miður þá tókust ekki
allar upptökur sem voru teknar þennan dag.
Þeir hópar sem fá bíómiða í Borgarbíó og popp og kók eru:
Öskudagsmyndir komnar inn
10.03.2011
Almennt
Það voru börn, löggur, skrímsli og aðrar kynjaverur sem heimsóttu Dekkjahöllina á öskudaginn. Dekkjahöllin á Akureyri
verðlaunar samkvæmt venju flottustu öskudagshópana. Dómnefnd er að störfum og verða úrslit tilkynnt fljótlega. Einnig munum við
birta nokkur myndbönd. Hægt er að skoða myndir með að skoða myndasafn (Um okkur - myndasafn) eða smella hér.
Dekkjahöllin er framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt Creditinfo
16.02.2011
Almennt
Creditinfo framkvæmdi nýlega greiningu á þeim rúmlega 32.000 íslensku fyrirtækjum, sem skráð eru í hlutafélagaskrá.
Dekkjahöllin er í hópi 177 fyrirtækja sem náðu bestu einkunn í þessu styrk- og stöðugleikamati og er samkvæmt því í
hópi sterkustu fyrirtækja landsins.
Nánari upplýsingar um styrkleikamatið og lista framúrskarandi fyrirtækja er að finna á heimasíðu Creditinfo (hér).
Heimsókn frá Krógabóli
09.02.2011
Almennt
Leikskólinn Krógaból kom í vettvangsheimsókn til okkar í Dekkjahöllinni á Akureyri í gær. Þau fengu skoðunarferð
um fyrirtækið og svo fengu þau að henda litlu dekki í stórt traktorsdekk. Að lokum fengu þau svo smá næringu eftir leikinn.
Börnin voru einstaklega góð og stillt þótt að mikið væri að sjá. Við þökkum börnum og kennurum Krógabóls
kærlega fyrir heimsóknina. Myndir er hægt að sjá í myndasafni