Karfan er tóm.
Dekkjahótel
Dekkjahöllin hefur í áraraðir boðið upp á dekkjahótel. Við geymum dekkin fyrir þig á öruggum stað svo að þú þurfir ekki að láta dekkin taka dýrmætt pláss í geymslunni.
Sért þú með dekk á felgum þá er það ekki vandamál. Þegar þú kemur í umskipti þá erum við búin að jafnvægisstilla dekkin þannig að það eina sem þarf að gera er að skipta um dekk. Einfalt og umfram allt þægilegt.
Hver dekkjagangur er tengdur bílnúmeri og jafnframt fyllir bíleigandi út geymslumiða sem tengdur er númeri sem sett er á hvert dekk.
Dekkjahótel er starfrækt á öllum þjónustustöðvum okkar.
Verð á dekkjahóteli:
| Tegund | Verð fyrir fjögur dekk |
| Fólksbíladekk | 11.580 kr. |
| Jepplingadekk t.o.m. 30" | 11.980 kr. |
| Jeppadekk 31"-32" | 13.980 kr. |
| Jeppadekk 33"-35" | 17.580 kr. |
| Jeppadekk 36"-39" | 26.580 kr. |
| Jeppadekk 40"-44" | 29.580 kr. |
| Jeppadekk 46"+ | 35.980 kr. |
Skilmálar um dekkjageymslu
Dekkjahöllin ehf. býður viðskiptavinum sínum upp á geymslu dekkja gegn gjaldi. Geymslugjald er greitt fyrirfram og gildir fram að næstu reglulegu árstíðaskiptum, nema um annað sé samið skriflega.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að sækja dekk sín innan hæfilegs tíma að loknum samningstíma. Dekk sem ekki hafa verið sótt innan 12 mánaða frá síðustu þjónustu eða samningslokum teljast yfirgefin og verða eign Dekkjahallarinnar ehf. Í slíkum tilvikum er fyrirtækinu heimilt, án frekari fyrirvara, að ráðstafa dekkjunum, þar á meðal að selja þau upp í áfallinn kostnað eða farga þeim.
Öll dekk sem geymd eru á felgum eru jafnvægisstillt á kostnað eiganda, nema sérstaklega sé samið um annað.
Dekkjahöllin ehf. leitast við að tryggja örugga og viðeigandi geymslu dekkja, en ber ekki ábyrgð á tjóni sem kann að verða vegna óviðráðanlegra atvika, svo sem eldsvoða, náttúruhamfara eða annarra atvika sem teljast force majeure.
Með afhendingu dekkja til geymslu samþykkir viðskiptavinur framangreinda skilmála.