Fara í efni

Fréttir & tilkynningar

Heimsókn frá Krógabóli

09.02.2011
Almennt
Leikskólinn Krógaból kom í vettvangsheimsókn til okkar í Dekkjahöllinni á Akureyri í gær.  Þau fengu skoðunarferð um fyrirtækið og svo fengu þau að henda litlu dekki í stórt traktorsdekk.  Að lokum fengu þau svo smá næringu eftir leikinn.  Börnin voru einstaklega góð og stillt þótt að mikið væri að sjá.  Við þökkum börnum og kennurum Krógabóls kærlega fyrir heimsóknina.  Myndir er hægt að sjá í myndasafni

Marangoni breytir Alfa Romeo

10.12.2010
Almennt
Marangoni hefur undanfarin ár alltaf tekið einn bíll og gjörbreytt honum.  Á bílasýningunni í Bologna frumsýndi Marangoni 2011 bíllinn sinn.  Bíllinn í ár er Alfa Romeo Giulietta 1750 Quadrifoglio Verde.  Mikið hefur verið lagt í breytingar á bílnum.

Lægsta verð á dekkjum samkvæmt könnun neytendastofu

15.10.2010
Almennt
Dekkjahöllin var með lægsta verð á dekkjum í 11 af 12 tilvikum í verðkönnun Neytendastofu sem framkvæmd var í 28 fyrirtækjum á síðustu dögum. Um var að ræða allar helstu stærðir undir fólksbíla: 175/65R14, 185/65R14, 185/65R15, 195/65R15, 205/55R16 og 225/45R17. Útkomu verðkönnunarinnar í heild má finna á heimasíðu neytendastofu: http://www.neytendastofa.is/Pages/13?NewsID=1360    

Marangoni örkornadekk fyrir þá sem vilja ekki nagla

10.09.2010
Almennt
Viltu ekki aka á nöglum? eða Viltu aka á sömu dekkjum allan ársins hring? Þá eru Marangoni örkornadekk lausnin fyrir þig. Mjúkt gúmmi sem inniheldur þúsundir agnarsmárra kristalla. Kornin á yfirborði dekksins auka grip þess. Síðan þegar kornin detta úr, þá verða eftir örlitlar holur, sem virka eins og sogskálar (samanborið loftbóludekk). Marangoni dekkin eru framleidd á Ítalíu og vetrardekkjalínan þeirra er sérstaklega hönnuð fyrir norðlægar slóðir (Ísland og Norðurlöndin). Örkorna- og heilsársdekkin frá Marangoni eru á einstöku verði í september. Kynntu þér málið strax!

Winterclaw vetrardekk á frábæru verði

08.09.2010
Almennt
Vorum að frá Winterclaw Extreme Grip vetrardekk í mörgum stærðum. Bjóðum þau á frábæru kynningarverði í September. "14 frá 8.195 kr/stk, "15 frá 9.480 kr/stk og "16 frá 11.860 kr/stk (verð eru án nagla). Kynntu þér málið hjá sölumönnum okkar.

Laus störf í boði

06.09.2010
Almennt
Dekkjahöllin auglýsir eftir starfsfólki á þjónustustöðvar sínar.  Leitum við eftir vönu starfsfólki á hjólbarðaverkstæði og smurstöðvar okkar.  Nánari upplýsingar um störfin er hægt að fá með að smella hér.

Krossaradekk og fjórhjóladekk

31.08.2010
Almennt
Dekkjahöllin hefur hafið innflutning á krossaradekkjum frá GoldenTyre á Ítalíu.  GoldenTyre lætur framleiða fyrir sig margar stærðir og gerðir og í nokkrum litum.  Við í Dekkjahöllinni höfum nú þegar fengið nokkrar stærðir í hús og bjóðum þær á kynningarverði þessa dagana.  Nokkrar stærðir af fjórhjóladekkjum fylgdu með og eru verðin mjög góð.

KERRUR - NÝ SENDING

18.08.2010
Almennt
Vorum að taka inn nýja sendingu af kerrum. Frábært hausttilboð í gangi - verð frá kr. 127.120 stgr. Kynnið ykkur málið.

Tjaldvagnadekk - fellihýsadekk

14.07.2010
Almennt
Ertu að leggja af stað í ferðalagið? Kannaðu ástandið á dekkjunum...ekki bara á bílnum, heldur líka á eftirvagninum. Vorum að fá sendingu af slíkum dekkjum í ýmsum stærðum.
'