Karfan er tóm.
Fréttir & tilkynningar
Heilsársdekk - vetrardekk - heilsársdekk
27.09.2009
Almennt
Nú er farið að snjóa og við hvetjum viðskiptavini til að skoða ástand hjólbarðanna áður en haldið er af stað í
langferð. Fyrir þá sem vilja naglalaus dekk, þá er m.a. boðið upp á Tempra Winterquest vetrar- og heilsársdekk og Marangoni heilsársdekk
með örkornum. Kynnið ykkur verð og gæði.
Heilsársdekk og örkornadekk
15.09.2009
Almennt
Flestar stærðir heilsársdekkja eru komnar í hús. Í boði eru Tempra Winterquest heilsárs- og vetrardekk og Marangoni örkornadekk
á frábæru verði í haust.
Atvinna í boði
12.08.2009
Almennt
Nú er farið að taka á móti umsóknum vegna ráðninga í september og október. Sjá nánar hér
Nýr afgreiðslusalur á Egilsstöðum
11.05.2009
Almennt
Í síðasta mánuði voru gerðar endurbætur á afgreiðslu á Egilsstöðum. Búið er að setja nokkrar myndir af
Kristdóri og félögum fyrir austan inn á myndasafnið.
Dekkjahöllin oftast með ódýrasta verð á Akureyri
04.05.2009
Almennt
Neytendasamtökin á Akureyri hafa um árabil alltaf framkvæmt könnun á verði hjólbarðaverkstæðanna í dekkjaskipti. Skemmst
er frá því að segja að Dekkjahöllin var oftast með ódýrasta verð. Hægt er að sjá niðurstöður með
því að skoða fréttina nánar
40% aukning í Dekkjahöllinni í Skeifunni
04.05.2009
Almennt
Óhætt er að segja að Reykvíkingar hafi tekið vel á móti Dekkjahöllinni í Skeifunni. Metaukning hefur átt sér stað á
milli ára. Skiptingum í apríl fjölgaði um 40% í samanburði við 2008. Við þökkum frábærar móttökur og
erum tvíefld í að bjóða fljóta og vandaða þjónustu á góðu verði.
Og nú er kátt í höllinni....
28.04.2009
Almennt
Undanfarnar vikur hefur verið mikið líf og fjör hjá okkur. Í tilefni af því settum við nokkrar nýjar
myndir í myndasafnið.
Nýr starfsmaður í Reykjavík
25.04.2009
Almennt
Almar Már Sverrisson hefur verið ráðinn á starfstöð Dekkjahallarinnar í Reykjavík. Við bjóðum Almar velkominn í
hópinn.
Jeppadekkin komin
21.04.2009
Almennt
Nýjasta sendingin af Sigma jeppadekkjunum er komin. Hægt er að sækja pantanir á flestum stærðum á öllum sölustöðum,
þ.e. á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík.