Fara í efni

Hvað þýða táknin?

18.02.2026

Hvað þýða merkingarnar á dekkjunum?

Á hlið dekkja eru mikilvægar upplýsingar um dekkið sem gott er að vita. Hér verður farið yfir mikilvægustu merkingarnar.

  1. Breidd dekks - 225
    Þetta er dekkjabreiddin í millimetrum, í þessu tilfelli er dekkið 225 millimetrar.
  2. Hlutfall hliðar – 45
    Þessi tala segir til um hlutfall milli hæðar og breiddar dekksins. Í þessu dæmi er hæðin 45% af breiddinni.
  3. Bygging dekksins – R
    „R“ stendur fyrir radíalbyggingu, sem er algengasta byggingin í nútíma dekkjum.
  4. Stærð felgu – 18
    Þessi tala sýnir hvaða stærð felgu dekkið passar á.
  5. Burðargeta – 95
    Talan er kóði sem segir hversu mikinn þunga dekkið getur borið þegar það hefur réttan loftþrýsting. Hver tala samsvarar ákveðnu þyngdartakmarki í kg. Þú getur skoðað töfluna nánar hér: https://www.dekkjahollin.is/is/thjonusta/dekkjafrodleikur
  6. Hraðageta – H
    Bókstafurinn segir til um hámarkshraða sem dekkið er hannað fyrir. T.d. merkir bókstafurinn „H“ að dekkið þoli akstur á um það bil 210 km/klst. Hér getur þú skoðað hraðatáknin nánar: https://www.dekkjahollin.is/is/thjonusta/dekkjafrodleikur
  7. Self-Supporting / Run flat
    Sum dekk eru merkt SSR. Þetta þýðir að dekkin geti haldið bílnum á lofti í ákveðinn tíma þó að loft tapist
  8. MOE
    Þessi tækni gerir ökumanni kleift að halda áfram akstri í takmarkaðan tíma eftir loftmissi, sem eykur öryggi og þægindi þar til hægt er að gera við dekkið eða skipta um það.
    Ef dekkið er merkt MOE þýðir það að dekkið getur akstur í allt að 80km á 80km/klst. Þetta fer samt allt eftir stærð skemmdar á dekkinu.
  9. M+S (Mud and snow)
    Táknar að dekkið sé gert fyrir snjó eða aur.
  10. DOT 36/16
    Þetta er númer sem segir til um í hvaða viku og hvaða ár dekkið var framleitt. Í dæminu kemur fram að dekkið hafi verið framleitt í viku 36 árið 2016.
    Mikilvægt er að vita aldur á dekkjunum og nauðsynlegt er að skipta um dekk sem eru orðin 10 ára gömul, hvort sem þau séu notuð eða ekki.
'