Dekkjahöllin fékk tvenn verðlaun frá Yokohama

Nú fer fram í London Yokohama Excellent Dealer Award og þar á Dekkjahöllin fulltrúa.  Dekkjahöllin var eitt fárra fyrirtækja sem fékk tvenn verðlaun afhent á þessari athöfn fyrr í dag.  Verðlaunin voru fyrir aukna markaðshlutdeild og svo sérstaka viðurkenningu Yokohama Club Network (YCN).  Elín Dögg Gunnarsdóttir veitti verðlaunum viðtöku og er stolt af árangri fyrirtækisins og ekki síst hversu vel viðskiptavinir Dekkjahallarinnar hafa tekið Yokohama: „Við höfum verið umboðsaðili Yokohama síðan 2011 og hefur dekkjunum verið gríðarlega vel tekið strax frá fyrsta degi. Dekkin hafa staðið undir því að vera gæðadekk og því ber ánægja viðskiptavina okkar vitni um.  Við erum afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu frá Yokohama.“ Segir Elín Dögg Gunnarsdóttir rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar. 

Elín Dögg tekur við verðlaunum

Þau fyrirtæki sem fengu afhend tvenn verðlaun

Verðlaunaplattinn