Karfan er tóm.
Sumardekk

Rétt sumardekk skipta sköpum fyrir öryggi og akstursþægindi yfir hlýrri mánuðina. Hjá Dekkjahöllinni finnur þú mikið úrval af sumardekkjum sem henta íslenskum vegum og breytilegum aðstæðum.
Sumardekk eru sérstaklega hönnuð til að veita betra grip á þurrum og blautum vegum þegar hitastig hækkar. Þau hafa stífara gúmmí og mynstur sem tryggir styttri hemlunarvegalengd, betri stöðugleika og minni slit en vetrardekk við sumar aðstæður.
Mikið úrval af sumardekkjum
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af sumardekkjum fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla. Við vinnum með traustum vörumerkjum eins og Continental, Yokohama og Falken sem eru þekkt fyrir gæði og endingu.
Starfsfólk okkar aðstoðar þig við að velja rétt sumardekk fyrir þinn bíl og þinn akstur, hvort sem þú leggur áherslu á öryggi, þægindi eða hagkvæmni.
Tímabil sumardekkja
Sumardekk hafa ekki fast lögbundið tímabil. Á móti er óheimilt að aka á nagladekkjum á tímabilinu 15. apríl til 31. október.
Mismunandi tegundir dekkja eru hannaðar fyrir ólíkar akstursaðstæður. Því er mikilvægt að hver ökumaður meti hvaða dekk henta best, með hliðsjón af veðri, færð og akstursvenjum.
Við hjá Dekkjahöllinni aðstoðum þig við að velja réttu dekkin.
