Óskum eftir starfsmanni í lagerumsjón

Dekkjahöllin óskar eftir að ráða traustan starfsmann í lagerumsjón á starfstöðvar sínar í Reykjavík.

Helstu verkefni
• Móttaka, talning og frágangur vara á lager.
• Akstur vara á milli starfstöðva og lagera.
• Aðstoð við störf á starfstöðvum á álagstímum.
• Önnur tilfallandi störf.
Hæfniskröfur
• Reynsla af sambærilegum störfum (lagerstörfum og birgðahaldi) er kostur
• Nákvæmni, talnagleggni og skipulagshæfni
• Almenn tölvukunnátta
• Gilt ökuskírteini , meirapróf kostur
• Hreint sakavottorð er skilyrði
• Kostur að hafa þekkingu á dekkjum
• Jákvæðni og þjónustulund
Upplýsingar um starfið veitir Benedikt Ármannsson, í tölvupósti benedikt@dekkjahollin.is eða síma 460-3009.
Umsóknum með ferilskrá óskast skilað í tölvupósti á benedikt@dekkjahollin.is, Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar