Takk fyrir komuna

Það var talsverður fjöldi sem heimsóttu okkur á Akureyri í dag, öskudag.  Öskudagurinn er haldinn hátíðlegur á Akureyri og undanfarin ár hafa komið meira en 100 hópar til okkar á Akureyri og árið í ár var engin undantekning.

Hægt er að skoða myndir af öskudagshópunum sem heimsóttu okkur á Facebook síðu okkar eða með að skoða myndasafn.

Dómnefnd er að velja vinningshópana sem fá bíómíða og popp og kók. Vinningshóparnir verða tilkynntir hér á heimasíðunni á morgun fimmtudag.