Nú getur þú greitt með Netgíró

Dekkjahöllin hefur bætt Netgíró við greiðsluleiðir á heimasíðunni. Viðskiptavinir Dekkjahallarinnar á netinu geta nú með aðstoð Netgíró fengið allt að 14 daga greiðslufrest á vörunum sínum eða sótt um að dreifa greiðslum á allt að 12 mánuði án þess að vera með kreditkort.

"Það er ánægjulegt að geta boðið viðskiptavinum okkur upp á þessa lausn.  Dekkjasala á netinu er komin til að vera og með henni erum við að geta þjónustað allt landið." segir Jóhann Jónsson, markaðsstjóri Dekkjahallarinnar.

Þegar kemur að því að velja greiðsluleiðir er Netgíró valið og er þá viðskiptavinur sendur inn á heimasíðu Netgíró til innskráningar.  Þar velur viðskiptavinur hvernig hann ætlar að skipta greiðslunni og fái viðskiptavinur heimild þá berst okkur staðfesting frá Netgíró.