
Hugmynd þessi, hún er snjöll
heyr þú ræðu mína,
drífðu þig í Dekkjahöll
að dekkja upp bifreið þína.Þjónustan alltaf þar er mest
það mun reynslan sanna.
Negla, felga, bóna best
bæta úr vanda mannaHöf. ónafngreindur viðskiptavinur
Dekkjahöllin er fjölskyldufyrirtæki, sem stofnað var af og er í eigu Gunnars Kristdórssonar. Fyrirtækið hefur verið í rekstri í yfir 20 ár, byrjaði smátt en hefur vaxið jafnt og þétt og hefur nú starfstöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík. Í dag er fyrirtækið með hjólbarðaþjónustu, smurstöð og þvottastöð á Akureyri og hjólbarðaþjónustu og smurstöð á Egilsstöðum og í Reykjavík. Fyrirtækið flytur inn dekk, felgur og fleiri fylgihluti, sem seldir eru í smásölu og heildsölu.
Nokkur ártöl í sögu Dekkjahallarinnar
1984:
Eftir að hafa starfrækt
hjólbarðaþjónustu í bílskúr um tveggja ára skeið flutti Gunnar reksturinn í nýtt húsnæði að
Draupnisgötu 5 á Akureyri. Fjöldi hurða 6.
1991:
Byggt við Draupnisgötu 5 á Akureyri.
Fjöldi hurða 4, samtals 10.
1993:
Hafinn rekstur smurstöðvar Dekkjahallarinnar á
Akureyri.
1993:
Hafinn rekstur þvottastöðvar Dekkjahallarinnar
á Akureyri.
1998:
Hlébarðinn ehf. í Fellabæ keyptur og
þar með hófst rekstur fyrirtækisins á Austurlandi. Fjöldi hurða 3. Boðið upp á hjólbarðaþjónustu, smurstöð og
bónþjónustu.
1999:
Byggt við Draupnisgötu 5 á Akureyri.
Fjöldi hurða 2 auk lagerhúsnæðis.
1999:
Keypt húsnæði að Draupnisgötu 3
á Akureyri. Fjöldi hurða 2. Aukin aðstaða fyrir þjónustu við búvéla- og vinnuvélar og vörubíla.
2002:
Keyptur rekstur Sóldekks á Egilstöðum.
Fjöldi hurða 2.
2004:
Byggt við Þverkletta 1 á
Egilsstöðum. Fjöldi hurða 7.
2008:
Keyptur rekstur hjólbarðaverkstæðis
í Skeifunni 5. Fyrsta þjónustustöðin í Reykjavík orðin að veruleika. Fjöldi hurða 4.
Í dag:
Starfsmenn fyrirtækisins eru í dag
á bilinu 30 – 40 eftir árstíðum.
Fjöldi hurða á Akureyri: 16. Fjöldi hurða á Egilsstöðum: 7. Fjöldi hurða í Reykjavík: 4











